Ístak hf
Málmiðnaðarmaður

Málmiðnaðarmaður

Ístak leitar að Málmiðnaðarmanni

Ístak hf. óskar eftir að bæta við starfsfólki í vélsmiðju fyrirtækisins við málmsmíði og stálreisingar. Starfsstöð vélsmiðju er í Bugðufljóti, Mosfellsbæ. Starfsmennirnir bætast í hóp starfsmanna í öflugri þjónustudeild Ístaks sem sinnir stálsmíði og reisir stálvirki bæði fyrir verk fyrirtækisins og aðra.

Ístak er öflugt verktakafyrirtæki sem annast fjölbreytt verkefni á ýmsum sviðum. Þar má nefna byggingaframkvæmdir af ýmsu tagi, virkjanir, stóriðjuframkvæmdir, jarðvinnuverk, mannvirkjagerð og hafnarframkvæmdir auk vega- og brúagerðar.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Almenn málmsmíði samkvæmt fyrirmælum verkstjóra.
  • Almenn suðuvinna á hlutum samkvæmt teikningum og að fyrirmælum verkstjóra.
  • Uppsetning og viðgerð á stálvirkjum.
  • Uppsetning og viðgerðir á öðru stáli í byggingum.
  • Uppsetning og viðhald á vélbúnaði fyrir stóriðju.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Iðnmenntun í stálsmíði, vélvirkjun eða sambærileg menntun.
  • Vottuð suðuréttindi.
  • Reynsla af stálreisningum.
  • Samskiptahæfni á íslensku, ensku eða pólsku er skilyrði.

Við bjóðum

  • Fjölbreytt og krefjandi starf hjá einu af leiðandi verktakafyrirtækjum landsins.
  • Þátttöku í stórum og spennandi verkefnum.
  • Öruggt og gott vinnuumhverfi.
  • Tækifæri til starfsþróunar og þátttöku í metnaðarfullum verkefnum.

Nánari upplýsingar hjá mannauðsdeild Ístaks í tölvupósti á netfangið hr@istak.is.

6. september 2026