Stjórnendur á hjólagröfu
Ístak leitar að ábyrgum og reyndum stjórnendum á hjólagröfu sem vilja taka þátt í fjölbreyttum framkvæmdaverkefnum. Um er að ræða spennandi og fjölbreytt verkefni hjá öflugu fyrirtæki á sviði mannvirkjagerðar.
Starfið felur í sér vinnu við jarðvinnu og uppbyggingu innviða með áherslu á öryggi, gæði og góð vinnubrögð.
Helstu verkefni
- Stjórnun og notkun hjólagröfu.
- Jarðvinna og undirbúningur framkvæmda.
- Daglegt eftirlit með vinnuvél og umhirða hennar.
- Fylgja öryggisreglum og verklagi fyrirtækisins.
- Samvinna við verkstjóra og aðra starfsmenn á verkstað.
- Önnur verkefni á vinnustað sem yfirmaður felur.
Menntunar- og hæfnikröfur
- Reynsla af stjórnun hjólagröfu er skilyrði
- Reynsla af stjórnun annarra gerða stórra vinnuvéla er kostur
- Gild vinnuvélaréttindi er skilyrði
- Gilt ökuréttindi (B-flokkur) eru skilyrð, meirapróf kostur.
- Reynsla af jarðvinnu er kostur.
- Ábyrgðarkennd og sjálfstæð vinnubrögð.
- Þekking á notkun GPS vélstýringa er skilyrði.
- Mjög góð enskukunnátta
- Góð íslenskukunnátta er kostur
- Góð samskipta- og samstarfshæfni.
- Öryggisvitund og metnaður fyrir vönduðum vinnubrögðum.
- Önnur starfsreynsla úr byggingariðnaði er kostur.
Nánari upplýsingar hjá mannauðsdeild Ístaks á hr@istak.is.