Smiður
Ístak hf leitar að smiðum í fjölbreytt verkefni.
Ístak er öflugt verktakafyrirtæki sem annast fjölbreytt verkefni á ýmsum sviðum. Þar má nefna byggingaframkvæmdir af ýmsu tagi, virkjanir, stóriðjuframkvæmdir, jarðvinnuverk, mannvirkjagerð og hafnarframkvæmdir auk vega- og brúagerðar.
Helstu verkefni:
- Starfsmaður sinnir ýmiss konar smíðavinnu samkvæmt teikningum, allt eftir eðli þess verkefnis sem unnið er við hverju sinni, t.a.m.
- Mótauppsláttur; samsetning á stöðluðum steypumótum og smíðavinna við mót.
- Ýmis smíðavinna
- Uppsetning á vinnupöllum
- Uppsetning á forsteyptum einingum.
- Smiður sinnir einnig öryggisráðstöfunum sem og frágangi á bráðabirgðarástöfunum.
Kröfur um menntun og/eða reynslu/hæfni
- Reynsla af sambærilegu starfi.
- Íslensku- og/eða enskukunnátta, geta til að vinna sjálfstætt og samviskusemi.
Nánari upplýsingar hjá mannauðsdeild Ístaks í s. 530 2764 og á hr@istak.is.